[Útgáfa gagna]



Átt þú gagnasafn í tölvutæku formi, sem þú vilt birta á Vefnum?

Ef svo er, getum við hjálpað þér að koma því á framfæri fyrir sanngjarnt verð. Hugmót býður þér upp á ráðgjöf og aðstoð við útgáfu hvers konar gagnasafna á Veraldarvefnum, hvort heldur fyrir íslenskan eða erlendan markað. smá-AUGLÝSINGAR á Internetinu, Síðusafnið, Bílasafnið og Skipaskrá Skerplu eru dæmi um slíka útgáfu.

Ótvíræðir kostir
-----------------------

Helsti kostur þess að gefa gögn út á vefnum er sá, að breytingar kosta lítið og geta verið mjög örar. Fyrir vikið eru upplýsingarnar ávallt ferskar og notendur þeirra því líklegri til að líta oft við á síðunum. Einnig eru þeir fúsari að eiga viðskipti við fyrirtæki sem veita góðar og ítarlegar upplýsingar um þá vöru og þjónustu sem í boði er. Síðast en ekki síst, er stundum hægt að láta notendur sjálfa viðhalda gagnasafninu, eins og gert er í Bílasafninu.

Hvað þarf til?
-----------------------

Í flestum tilfellum er það sem til þarf eitt eða nokkur forrit sem lesa gagnasafnið og breyta því í vefsíður. Um getur verið að ræða allt frá einni einfaldri síðu, upp í heilan vef síðna sem tengjast þvers og kruss, bæði innbyrðis og út á við. Einnig má birta myndir og skreyta síðurnar á ýmsa vegu.

Þú þarft síðan að leigja þér pláss fyrir vistun síðnanna og kynna þær eftir bestu getu. Best er að þú sjáir sjálfur um viðhald upplýsinganna og að uppfæra síðurnar reglulega (t.d. gegnum FTP). Ef þú óskar, getum við aðstoðað þig við uppfærslurnar eða séð alveg um þær fyrir þig.

Aðrir valkostir
-----------------------

Að auki er unnt að bjóða notandanum upp á að slá inn valforsendur og vinna síðan sérstaka svarsíðu fyrir hann í einum grænum hvelli (on-the-fly). Síðusafnið og Skipaskrá Skerplu eru góð dæmi um slíkt. Það kostar að vísu meiri forritun og sérstakt samkomulag við eiganda vefþjónsins þar sem þú hýsir síðurnar, eða jafnvel eigin vefþjón, en býður jafnframt uppá meiri möguleika og sérhæfðari þjónustu.

Hér eru nokkur dæmi um upplýsingar sem mætti auðveldlega "gefa út" á vefnum:

Hvernig ber ég mig að?
-----------------------

Umfang slíkrar útgáfu fer mjög eftir eðli gagnanna og þeirri framsetningu sem þú óskar eftir. Við vinnum fyrst fyrir þig forkönnun gegn tímagjaldi og þegar umfangið er orðið ljóst, getum við gert þér fast verðtilboð eða unnið það skv. tímagjaldi. Einnig bjóðum við aðstoð við að vista síðurnar og koma þeim á framfæri. Tímagjaldið er 6.000 kr/klst. án VSK.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á útgáfu gagnasafna á Veraldarvefnum.

Sjá einnig:
-----------------------


Heimasíða · Tölvupóstur
© 1995-1999, Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn
Síðast breytt 5.12.1999