Tannlæknaþjónninn - Breytingasaga


 

Á þessari síðu getur þú fylgst með nýjungum og breytingum sem tengjast Tannlæknaþjóninum. Stefnt er að nýrri útgáfu nokkrum sinnum á ári, til að uppfylla þarfir notenda sem best.

Ef þú hyggst sækja nýjustu útgáfu til að uppfæra hjá þér, smelltu þá hér.

 


Útgáfa 2018.9.15.1

Breytingar:

  • Nýtt: SÍ-taxti vegna endurgreiðslu til aldraðra og öryrkja, ásamt forsendum
  • Lagfæring: Sending á stöku SMS fyrir til að minna á tíma, gefur nú réttan tíma skv. dagbók
  • Ýmsar aðrar smærri lagfæringar

 


Útgáfa 2015.4.15.1

Nýjungar:

  • Bakfærsla á SÍ-reikningi
  • Sveigjanleg nafnaleit (óháð millinafni)
  • Kynkóði og sjálfvirk kyngreining út frá nafni
  • Sækja símanúmer til ja.is með vefþjónustu (mun áreiðanlegra en eldri aðferðir)
  • Leit í aðgerðaskrá.
  • Skoða fjölda þjóðskrárflettinga yfir tiltekið tímabil
  • Skilgreina má sjálfgefinn fjölda tíma-hólfa (kortera) við skráningu í dagbók
  • Tenging við Digirex röntgenforrit.
  • Hægri-smellu valmynd í kort (til að merkja línur og fella niður)
  • TannData: Aðgerð til að kyngreina sjúklinga
  • TannData: Aðgerð til að byggja upp flýtiskrá fyrir sveigjanlega nafnaleit

Lagfæringar:

  • Hlutur sjúklings og hlutur SÍ prentast á reikning
  • Sending reiknings til SÍ hefur verið endurbætt vegna sérumsókna, tannsmíðakostnaðar og tannréttinga
  • Lagfæringar á Sérfræðiálagi
  • Aldur sjúklings er nú reiknaður rétt m.v. fæðingardag
  • Innköllunarlisti inniheldur nú öll símanúmer sjúklings
  • Draugalína á nýjum sjúklingum heyrir sögunni til

 


Útgáfa 2014.5.13.1

Nýjungar:

  • Rafræn samskipti við Sjúkratryggingar Íslands
  • TannData: Aðgerð til að finna aðila án GSM-númers.
  • TannData: Finna ytri IP-tölu (sem er notuð við fjarstýringar á tölvum)

Lagfæringar:

  • Lagfæring á tengingu við símaskrá á www.ja.is
  • Endurbætur á dagatali í dagbók, þ.e. betra útlit og 31. desember kemur nú með.
  • Lagfæringar á Sérfræðiálagi.
  • Rammaskjal fyrir sjúkraþjálfun.

 


Útgáfa 2013.5.14.1

Nýjungar:

  • Aðlögun að samningi milli SÍ og TFÍ um 100% endurgreiðslu á tannlækningum fyrir börn og unglinga í tilteknum aldurshópum. Verðskráin fylgir með Þjóninum, svo notendur þurfa ekki að breyta sínum verðskrám. Einnig fylgja skýringar á endurgreiðslureglum, sem birtast þegar aðgerðarlína er skráð á kort sjúklings.
  • OpenDigora tengiforrit í boði fyrir aðila sem nota Digora röntgenskanna fyrir digital-filmur.
  • Hægt er að merkja sjúklinga sem virka/óvirka/látna og velja viðeigandi hópa í ýmsum skýrslum.

Lagfæringar:

  • Lagfæring á tengingu við símaskrá á www.ja.is
  • Sveigjanlegri tenging við nokkur röntgenforrit (skilgreina má staðsetningu og heiti samskiptaskrár)
  • Lagfæring á útprentun lyfseðla (læknisnúmer fært til)

 


Útgáfa 2012.9.15.1

Nýjungar:

  • Senda SMS-áminningar til valinna aðila
  • Staðlaðir rammatextar í sendingu áminninga með SMS og tölvupósti.
  • Skilgreina má hvaða flipar sjáist (Kort, Stofn, Status, Perio) þegar sjúklingur er valinn

Lagfæringar:

  • Endurbætt uppfletting símanúmera, með sjálfvirkri tengingu við vefsíðu ja.is ef áreiðanlegar upplýsingar um símanúmer finnast ekki.
  • Tenging við DBSWin fyrir börn fædd árið 2000 hefur verið lagfærð.
  • Fleiri breytur hafa verið skilgreindar, fyrir samskipti við önnur forrit.
  • Ýmsar lagfæringar á hjálpartexta, notendahandbók og uppfærsluferli.
  • TannData forritið býður nú upp á ákall á ýmis hjálpartól, sem m.a. auðveldar greiningu netvandamála.
  • TannData getur nú skipt upp símanúmerum, þar sem 2 eða 3 númer hafa verið skráð í heimasíma/vinnusíma.

 


Útgáfa 2012.1.14.1

Nýjungar:

  • Leita má eftir sjúklingi út frá símanúmeri. Hentar vel ef þú notar númerabirtingu á símanum.
  • Leita má eftir sjúklingi út frá tilvísandi tannlækni.
  • Raða má lista yfir sjúklinga sem fundust á ýmsa vegu, með því að smella á viðeigandi dálk. Einnig birtist fjöldi þeirra á stöðulínu.
  • Skilgreina má hvaða flipi opnast þegar sjúklingur er opnaður: Kort, Stofn, Status eða Perio.
  • TannData forritið getur nú endurbyggt skemmdar lykilskrár (indexa) fyrir töflur.

Lagfæringar:

  • Skýrari framsetning á lista yfir sjúklinga sem fundust skv. leitarskilyrðum. Póstnúmer og kennitala birtist nú líka.
  • Val á dagsetningum og tímabilum hefur verið endurbætt.
  • Villa sem lýsti sér í röngum haus á reikningi ef athugasemdir voru skrárðar við kortalínu, hefur verið lagfærð.
  • Villuprófun á dagsetningu innkalls: Ekki er leyft að tilgreina dagsetningu sem er liðin.
  • Fleiri möguleikar bjóðast nú í sendingu áminninga með SMS og tölvupósti.

 


Útgáfa 2011.10.3.1

Nýjungar:

  • Afrita helstu atriði um sjúkling yfir á Windows klippuborðið. Þetta má m.a. nota v/samskipta við önnur forrit, límmiðaprentun o.fl. Hægt er að skilgreina hvaða svæði eru notuð, sem og útlit (format) afritunarinnar í Tann.ini stýriskránni.
  • Stofna má algeng skjöl fyrir sjúkling, t.d. slysavottorð og önnur skjöl sem send eru til Sjúkratrygginga Ríkisins. Fyrst er rammaskjal afritað yfir í skjalasafn sjúklingsins og það síðan opnað.
  • Mögulegt er að stilla Dagbókina þannig að dagurinn byrji fyrir kl. 08:00 á morgnana og úthlutaðar tímaeiningar geta verið 5, 10, 15, 20, 30 eða 60 mínútur að lengd.
  • Nýr takki í dagbók [Dagurinn í dag] svo auðveldara sé að hlaupa á þann dag sem mest er unnið með.
  • Eyða má mynd sjúklings af skrá (með því að hægri-smella á myndina og velja viðeigandi aðgerð).
  • Val um að Skrá ítarlegar upplýsingar í atburðaskrá, til að auðvelda greiningu samskiptavandamála o.fl. í þeim dúr.
  • Auðveldari tenging við Myndasafn (skjalasafn) sjúklings með Ctrl+M.

Lagfæringar:

  • Myndasafn sjúklings er nú stofnað sjálfvirkt, án þess að birta viðvörun.
  • Tenging við SIDEXIS röntgen myndavélar hefur verið endurbætt. Þessi tenging hefur verið sannprófuð hjá Tannlæknadeild Háskólans.
  • Villa í prentun reikninga, þar sem haus átti til að hverfa, hefur verið lagfærð.
  • Birting dagsetninga í kerfinu, er nú víðast hvar á almennu íslensku formi: 15. okt. 2011 (í stað 15. Okt 2011)
  • TannData villukamburinn var endurbættur. Nú er betur unnt að stjórna hvaða skrár og svæði verða villuprófuð.
  • ... og fjölda annarra smærri lagfæringa.

 


Útgáfa 2011.4.10.1

Nýjungar:

  • Athugasemdir um sjúkling í Stofni: Athugasemdirnar geta verið nokkuð ítarlegar og sjást fyrstu 6 línurnar strax. Ekki þarf lengur að nota önnur svæði undir slíkar upplýsingar.
  • Tenging við Vanskilaskrá (Vogina hjá CreditInfo) gegnum valmyndina.
  • Hægt er að fletta í þjóðskrá eftir nafni eingöngu, við nýstofnun sjúklings. Þá birtist nafnaleitin í þjóðskrá og þú getur valið rétta aðilann og "sótt" hann.
  • Upplýsingar um forráðamann eru ekki hreinsaðar út við uppflettingu í þjóðskrá, nema nýjar sé að hafa. Breytingin er einnig vistuð í atburðaskrána.

Lagfæringar:

  • Betri tenging við þjóðskrá (Socket error villan heyrir nú sögunni til).
  • TannData villukamburinn var endurbættur.
  • Betri aðlögun fyrir Windows 7 og VISTA (stækkun leturs).
  • ... og ýmsar aðrar smærri lagfæringar.

 


Útgáfa 2011.3.27.1

Nýjungar:

  • Tenging við Schick röntgenmyndavélar.
  • Tenging við Sidexis röntgenmyndavélar.
  • Tenging við aðrar tegundir myndavéla sem ekki hafa þegar verið skilgreindar. Notuð er sveigjanleg skipanalína sem leyfir fjölda breytuheita.
  • Virkja má atburðaskráningu frá valmynd og nota til að greina ýmis vandamál.
  • Niðurfelling bókunar úr dagbók er nú skráð í atburðaskráningu, svo finna megi út eftirá hvaða sjúklingur það var og aðrar upplýsingar um bókunina.
  • Skoða atburðaskráninguna (Tann.log).
  • Sjálfvirkt ákall á skipun fyrir drifmöppun, ef samband næst ekki við gagnagrunninn þegar forritið er ræst.

Lagfæringar:

  • Endurbætur á skilgreiningum um SMS-þjónustu sem nota skal til sendingar á SMS-skeytum, svo hægt sé að tengjast við fleiri þjónustuaðila.
  • Takki fyrir Myndasafn verður nú feitletraður ef safnið er til og einhver skjöl er þar að finna.
  • Þegar sjúklingur er stofnaður, er nú sjálfgefið hakað við "Vill fá SMS".
  • Sjálfgefið er nú að leita í Netþjóðskrá ef hún og þjóðskrá á diski eru báðar virkar.
  • TannData villukamburinn var endurbættur og ræður nú við fleiri villur en áður.
  • Endurbættur hjálpartexti og notendahandbók.
  • ... auk fjölda annarra smærri lagfæringa.

 


Útgáfa 2011.3.14.1

Nýjungar:

  • Sækja má símanúmer (heimasíma og GSM-síma) sjálfvirkt frá www.ja.is með því að smella á takkann Sækja símanúmer í stofni.
  • Hægt er að skilgreina hvaða SMS-þjónustu skuli nota til sendingar á SMS-skeytum. Sendandinn ber kostnað af slíkri áskrift, en áreiðanleikinn er mun meiri. Dæmi um slíka þjónustu er www.isms.is þar sem hvert skeyti kostar um 12 kr.
  • Atburðaskráning (e. logging) vegna samskipta yfir Internetið. Hentar vel til að rekja samskiptavandamál.
  • Valkostur: Nota bandstrik í símanúmeri. Þegar símanúmer er skráð eða sótt, er það vistað á forminu 562-3740 en annars sem 562 3740.
  • Formar símanúmer sjálfvirkt við innslátt, ýmist með orðabili eða bandstriki.
  • Mögulegt er að ræsa fleiri en eitt eintak af Tannlæknaþjóninum, t.d. ef tvær stofur nota sömu tölvuna. Rofi /M á skipanlínu leyfir það.
  • TannData: Laga format símanúmera í Sjúklingaskránni.
  • TannData: Gróf hraðamæling á lestri gagna úr gagnagrunninum, og tenging við Netspeed og http://reykjavik.speedtest.net sem allt getur hjálpað við greiningu á netvandamálum.
  • Innsetningarforrit fyrir nýja aðila. Setur inn Tannlæknaþjóninn og Borland Database Engine. Prufuleyfi fylgir.
  • Hjálpartextinn er nú líka aðgengilegur á vefnum á slóðinni www.hugmot.is/tann/help

Lagfæringar:

  • Prentun Greiðslukvittunar gerð virk á ný.
  • Heimilisfang og póstnúmer sést nú í leit í þjóðskrá á diski.
  • Endurbættur hjálpartexti og notendahandbók.

 


Útgáfa 2011.3.6.1

Nýjungar:

  • Bein tenging við þjóðskrá við stofnun sjúklings. Nafn og kennitala forráðamanns er líka fyllt út ef við á.
  • Leit í þjóðskrá á netinu.
  • Fletta má auðveldlega upp fjölskyldu sjúklings.
  • Sækja má sjúkling/stofna hann beint úr þjóðskrárleit.
  • Flytja má gögn úr Sjúklingaskránni yfir í textaskrá fyrir Excel o.fl. forrit
  • Sending gagna til Sjúkratrygginga.
  • Sjálfvirk skipting milli sviða í leit.
  • Möguleiki á fjölda í aðgerðum á bak við flýtivísanir.
  • Tenging við myndasafn sjúklings (og sjálfvirk stofnun þess).
  • Sjálfvirk athugun hvort ný útgáfa sé í boði.
  • Sérstakt forrit sem sannprófar gögn kerfisins (Tanndata).
  • Fleiri valkostir sem stjórna hegðun forritsins.
  • Sending stakra SMS-skilaboða.
  • Bein tenging við tölvupóst frá netfangi sjúklings.
  • Tenging við fleiri myndavélaforrit (DBSwin og VixWin).
  • Vistun upplýsinga um sjúklinga sem kallaðir voru fram þann daginn.
  • Auðveld uppfærsla í nýjustu útgáfu hverju sinni.
  • Ítarlegur hjálpartexti.
  • Notendahandbók á PDF-formi sem hentar til útprentunar.
  • ... og ýmislegt fleira.

Lagfæringar:

  • Öruggari sendingu SMS-skilaboða úr dagbók.
  • Verulega endurbætt útlit í samræmi við Windows hefðir.
  • Lagfæringar á net-uppsetningu svo læsingarvandamál heyra nú sögunni til.

Allar ábendingar um atriði sem betur mega fara í Tannlæknaþjóninum, og óskir um nýjungar, eru mjög vel þegnar. Sendu tölvupóst til Ingólfs Helga í it@hugmot.is.

 

Saga Tannlæknaþjónsins

Tannlæknaþjónninn var upphaflega hugarfóstur Hængs Þorsteinssonar tannlæknis og á sér langa sögu.

Árið 1987 lagði Kristinn Johnsen grunninn að kerfinu og útfærði það fyrir Archimedes tölvu frá Acorn. Kerfið byggði á hinu hefðbundna sjúklingakorti og gerir enn. Fyrsta útgáfan var tekin í notkun 1988 á tannlæknastofu Hængs. Ragnar Hafstað og Garðar Runólfsson tóku síðan við þróun forritsins.

Árið 1996 þegar Windows 95 hafði fest sig í sessi, var ráðist í endurgerð forritsins fyrir Windows tölvur. Ragnar tók að sér verkið og forritaði það í Delphi (Pascal fyrir Windows) og virkjaði Borland Database Engine fyrir gagnagrunninn. Fyrsta Windows-útgáfa forritsins leit svo dagsins ljós 1997 og fljótlega náði forritið góðri útbreiðslu meðal tannlækna.

Árið 2009 keypti Tannhjól ehf forritið af Hængi og sá Ragnar áfram um viðhald þess.

Árið 2010 tók Ingólfur Helgi Tryggvason hjá Hugmóti ehf að sér viðhald forritsins. Þessi nýja og endurbætta útgáfa er afrakstur af þeirri vinnu undanfarna mánuði. Sérstakar þakkir fá Kolbeinn Normann, Hannes Ríkarðsson, Sigurjón Sigurðsson og Hængur Þorsteinsson fyrir prófanir á kerfinu meðan það var í þróun.

Nú nota um 60 tannlæknar forritið í daglegum rekstri á meira en 150 útstöðvum alls.

 


© 2011-2018, Hugmót ehf og TEG ehf - Allur réttur áskilinn