Saxa - Væntanlegar nýjungar
Smelltu hér til að sækja sýniseintak

 
Táknmynd Söxu Saxa er í stöðugri þróun til að mæta kröfum notenda og gera hana fjölhæfari. Saxa 5.0 kom út í maí 2005 og innheldur ýmsar endurbætur.

Meðal nýjunga eru:

  • Verulega endurbætt innsetningarforrit
  • Nýtt útlit með XP-stíl f. Windows XP
  • Nýjar táknmyndir (icon)
  • Aukinn hraði við vinnslu Word-skjala
  • Lagfæringar á undantekningaskrá
  • Ítarlegur hjálpartexti með myndum

Jafnt og þétt söfunum við hugmyndum í næstu útgáfu og eru ábendingar vel þegnar. Meðal þess sem búast má við, er:

  • Forskoðun á Word-skjölum.
  • Samþætting við Windows Explorer (hægri-smellu valmynd), þar sem hægri-smella má á skjöl/textaskrár og Saxa strax.
  • Orðaskiptingar fyrir vefsíður, HTML og XML skjöl.
  • Saxa vinni úr skrám sem kastað er til hennar (Drag-and-drop).
  • Tilgreina megi eftirnöfn textaskjala og eftirnöfn skjala sem Word á að vinna.
  • Tíma- og hraðamæling á vinnslum.
  • Notendur geti sent inn orðalista (löng orð) til Hugmóts, til að stækka viðmiðunarorðasafnið og stuðla þannig að enn réttari skiptingum.
  • Auðveldara verði að velja hvaða ASCII-gildi sem er fyrir skiptitákn
  • Val um að hreinsa skiptitákn úr skjölum.
  • Samþætting við Windows Explorer (hægri-smellu valmynd).
  • Sjálfvirk könnun á nýjum útgáfum og uppfærsla yfir netið (Live-Update).
  • Meiri samþætting við Word (með WordBasic-fjölvun).
  • ... og aðrar þær viðbætur sem þú óskar eftir!

 

Endilega hafðu samband ef þú hefur hugmyndir um nýjungar sem þú vilt sjá í Söxu.
Einnig hvetjum við þig til að tilkynna villur sem þú finnur í forritinu sjálfu eða orðaskiptingum þess.



© 2001-2005, Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn
Síðast breytt 22.5.2005