Netafrit - Geymsluþjónusta

Sæktu þér sýniseintak af Netafriti  
Vanti þig geymslupláss á FTP-netþjóni fyrir afritin þín, bjóðum við það á sanngjörnu verði. Það felur í sér aðgang að slíku plássi og ef þú kýst, getum við sent þér sjálfvirka áminningu í tölvupósti og/eða SMS ef tiltekinn tími er liðinn frá síðasta afriti.

Nú fylgir Netafrit með ef þú leigir geymslupláss hjá okkur!

Þegar geymsluplássið fyllist, getur þú valið um sjálfvirka tiltekt þar sem elstu afritunum er eytt eða að fá þau vistuð á geisladisk. Það hentar vel ef þú vilt eiga margar útgáfur af gögnunum þínum aftur í tímann, t.d. ef þú ert að skrifa bók eða þróa hugbúnað.

Við leggjum mikla áherslu á að tryggja öryggi gagnanna þinna. Til þess notum við tölvur af bestu gerð (IBM og Fujitsu-Siemens), varaflgjafa frá APC og tökum reglulega öryggisafrit út á aukadiska. Höfuðáhersla er lögð á að netþjónar okkar séu ávallt til þjónustu reiðubúnir!

 

© 2002-2009, Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn