Ráðgjöf um tímastillingar
Hugmót hefur mikla reynslu af uppsetningu, stillingum og rekstri tímaþjóna.
Við bjóðum fyrirtækjum ráðgjöf varðandi tímaþjónustur á netkerfi. Oft er hægt að nýta núverandi búnað til að miðla réttum tíma innan fyrirtækisins, og fljótlegt að koma tímastillingum í mun betra horf en áður var.
![]()
Uppsetning búnaðar
Við getum lagt þér lið við að stilla upp og sannreyna tímaþjóna sem þú kaupir sjálf(ur).
Ennfremur getum við útvegað tímaþjóna, veggklukkur og hugbúnað sem þarf til. Þannig má sérsníða lausn sem hentar þínum þörfum.
Við höfum góða reynslu af búnaði frá TimeTools og höfum einnig prófað ýmsar smátölvur sem henta fyrir tímaþjónustur.
Hafðu samband ef þú vilt fá okkur til að tryggja nákvæman tíma í tölvukerfum þínum.
© 2015 - Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn