Betri lausnir (NTP biðlarar)

 

NTP stendur fyrir Network Time Protocol (RFC 1305) er mjög góður staðall til að samræma tíma í tölvukerfum. Hann er flóknari í útfærslu en SNTP og þar af leiðandi ekki eins útbreiddur.

NTP biðlarar (clients) senda fyrirspurn til NTP-tímaþjóna og fá til baka nákvæman tíma. Að vísu þarf að taka tillit til seinkunar í samskiptum yfir netið, sem stundum getur skipt nokkrum hundraðshlutum úr sekúndu. Nákvæmnin sem þessi forrit ná yfir Internetið, er því oft um 5-10 ms. frá réttum tíma. Sé notast við áreiðanlegan tímaþjón á staðarneti, getur nákvæmnin orðið 0,5-2 ms frá kórréttum tíma.

Leiðréttingin er yfirleitt framkvæmd með því að flýta/seinka klukkunni yfir hóflegt tímabil og til frambúðar, svo klukkan nái smátt og smátt að fylgja viðmiðunar-klukkunni án þess að gera þurfi róttækar leiðréttingar. Algengt er að nota fleiri en einn tímaþjón, til að ná fram meiri nákvæmni og/eða rekstraröryggi.

Eldveggir

Ef tölvan þín notar eldvegg eða er á bak við einn slíkan (gildir um flestar ADSL-tengingar og netkerfi í fyrirtækjum), gæti þurft að leyfa UDP samskipti á porti 123 til að SNTP og NTP virki.

Lausnir fyrir Windows

Ýmsir hugbúnaðarframleiðendur bjóða NTP-lausnir fyrir Windows. Hér er listi yfir nokkur slík forrit sem við höfum prófað og getum mælt með:

  • Domain Time II Client er mjög gott forrit sem kostar tæpa 20 USD. Það býður líka upp á samstillingu við tímaþjóna sem nota aðra samstillingarstaðla. Samstilling er framkvæmd með því að flýta/eða seinka klukkunni um nokkurn tíma, sem er betra en að gera það í einu stökki, sérstaklega fyrir netþjóna eða vinnustöðvar sem vinna mjög tímaháð verkefni. Domain Time II er tvímælalaust besta forritið í þessum flokki. Notendaviðmótið er nokkuð flókið fyrir byrjendur, en kostir forritsins vega upp slíka galla.

  • PresenTense Time Client frá ByteFusion er býsna gott forrit sem kostar tæpa 40 USD. Það býður upp á tengingu við NTP4-tímaþjóna og GPS-móttakara, en þá getur það náð nákvæmni upp á innan við 1 millisekúndu. Það býður upp á fjölda stillinga og er með lipurt viðmót. Fyrirtækið býður einnig PresenTense Auditor til að fylgjast með tímafrávikum og sanna fyrir dómstólum að klukka tölvukerfa hafa verið innan eðlilegra skekkjumarka. Eftirlitsforritið kostar um 60 USD.

     

Lausnir fyrir Linux, Mac og iSeries

Linux-tölvur má samstilla með skipuninni ntpd sem jafnar tímamun í örsmáum áföngum, svo það trufli ekki vinnslu tímaháðra forrita. Skipunin getur notað bæði SNTP og NTP tímaþjóna. Sjá nánari lýsingu á þessari vefsíðu.

Mac-tölvur bjóða stillingar í stýrikerfinu, er hægt að tilgreina tímaþjóna í valmyndinni "Set date & time automatically" í "Date & Time preference pane" og er klukkan fínstillt eftir þeim. Þar sem Mac OS X er byggt á Unix, er ntpd skipunin notuð, en hún ræður bæði við NTP og SNTP tímaþjóna.

IBM iSeries (einnig kölluð AS/400) getur samræmt sína klukku við NTP-þjóna, með því að tilgreina forsendur með skipuninni CHGNTPA eða gegnum iSeries Navigator. Sjá nánari leiðbeiningar á vef IBM. Klukkan í iSeries tölvu er mun stöðugri en í PC-tölvu og hentar hún því sem "master" innan netkerfis. Hún notar þá SNTP biðlara til að leiðrétta eigin klukku, og miðlar réttum tíma til annarra tölva á netkerfinu með NTP þjónustu.

Til baka á yfirlit  

© 2007 - Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn