Markmið okkar


Markmið Hugmóts er að veita viðskiptavinum okkar hugbúnaðarþjónustu í hæsta gæðaflokki, og leggja um leið okkar af mörkum til samfélagsins.

Hugmót leggur metnað sinn í að þróa hugbúnað fyrir íslenskar aðstæður og vera brautryðjandi á hinum ýmsu sviðum tölvumála. Má þar nefna orðaskiptingaforritið Söxu, Tímastillingu tölvukerfa og Loftfaraskrá Flugheims, sem um leið er ókeypis þjónusta fyrir alla þá sem njóta vilja.

Til að ná þessum markmiðum, leitum við sífellt leiða til að auka gæði þjónustunnar með markvissari vinnuferlum og nánu samráði við viðskiptavinina. Ennfremur leitumst við stöðugt við að auka þekkingu og reynslu starfsmanna, brydda upp á nýjungum og bæta aðbúnað starfsmanna.

Hafðu samband ef við getum orðið þér að liði!



© 2000-2013, Hugmót ehf - Allur réttur áskilinn